Forsíða ft.is Fréttir
Fréttir
Aðalfundur 2010 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: ft-stjórn   
Miðvikudagur, 28. apríl 2010 11:42
Aðalfundur Félags tölvunarfræðinga verður haldinn miðvikuudaginn 12. maí klukkan 17:00.

Í ár verður hann haldinn á sama stað og á síðasta ári, í fyrirlestrasal Íslandspósts að Stórhöfða 29.

Gengið er í húsið sjávarmegin. Staðsetningu má sjá á kortinu hér að neðan.

Dagskrá verður samkvæmt lögum félagsins:

1. Skýrsla um störf félagsins á liðnu starfsári.
2. Reikningsskil.
3. Lagabreytingar.
4. Kosning stjórnar og varamanna.
5. Kosning skoðunarmanna.
6. Ákvörðun félagsgjalda.
7. Önnur mál.

Farið verður yfir nýjustu kjarakönnun félagsins undir liðnum "Önnur mál" og heiðursfélagi tilnefndur.

Að venju verður boðið upp á léttar veitingar.
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 05. maí 2010 11:48
 
Fyrirtækjaheimsókn til ThorDC Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: ft-stjórn   
Mánudagur, 26. apríl 2010 11:24
Gagnaversgámur ThorDC

Þeir félagar hjá Thor Datacenter bjóða Félagi tölvunarfræðinga í fyrirtækjaheimsókn föstudaginn 7. maí, klukkan 17-19.   Í vetur héldu þeir samlokufyrirlestur um starfssemina og var mikill áhugi félagsmanna.  Núna ætla þeir að sýna okkur hvernig gagnaver í gámum virka.  Þetta er einstakt tækifæri  fyrir okkur tölvunarfræðinga, til að sjá oft nefnda framtíðarvon íslendinga verða að nútið!  ThorDC er staðsett að Steinhellu 10, Hafnarfirði.  Meldið þáttöku í tölvupósti, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . 

Síðast uppfært: Mánudagur, 26. apríl 2010 11:31
 
Förum á flug! Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: ft-stjórn   
Mánudagur, 15. mars 2010 15:18

CalidrisCalidris ætlar að taka á móti okkur 26. mars kl. 17:00 til 19:00.  Þau eru stödd í Vesturhlíð 7.  Calidris þróar og selur hugbúnaðarlausnir til flugfélaga á alþjóðamarkaði. Þau ætla að gefa okkur innsýn í þeirra vinnu og hvað lætur þau fara á flug - á hverjum degi.  Áhugavert hugbúnaðarfyrirtæki sem virðist vekja athygli út fyrir landsteinana.  Vinsamlega meldið þáttöku með tölvupósti á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Síðast uppfært: Mánudagur, 15. mars 2010 15:46
 
Theódór talar um hættur í heimi þróunar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: ft-stjórn   
Mánudagur, 08. mars 2010 16:00
Samlokurfyrirlestur á miðvikudaginn 10. mars.  Farið verður yfir skemmtileg dæmi um öryggishættur í hugbúnaði og hvaða hugsanlegu afleiðingar slíkar villur gætu haft. Theódór mun tala um raunveruleg dæmi og koma með live demo á veikleikum ásamt því að tala um þá veikleika hann hefur fundið við sína vinnu í gegnum árin. Fyrir utan dæmi um hvað getur farið úrskeiðis verður, í stuttu máli, fjallað um hvað þróunaraðilar geta gert til að forðast að lenda í klóm hakkara. Theódór hefur 15 ára reynslu reynslu af upplýsingaöryggi og er fyrsti atvinnuhakkari Íslands.  Meldið mætingu á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. svo hægt sé að áætla samlokur.  Fyrirlesturinn er í sal Verkfræðingafélag Íslands, Engjateigi 9, klukkan 12-13.
Síðast uppfært: Mánudagur, 08. mars 2010 16:23
 
Fyrirtækjaheimsókn til Betware Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: ft-stjórn   
Þriðjudagur, 02. febrúar 2010 16:50

Betware ætlar að bjóða FT í fyrirtækjaheimsókn föstudaginn 12. febrúar kl 17-19.  Betware er ört vaxandi hugbúnaðarfyrirtæki sem leggur áherslu á nýsköpun og þróun.  Hjá Betware eru 100 starfsmenn á Íslandi og erlendis. Þau ætla að fræða okkur um hugbúnaðgerðina, leikina, og hvað það er gaman að skapa nýtt og ferskt. 

Það verður án efa áhugavert að líta til þeirra, enda er Betware fyrirmyndarfyrirtæki samkvæmt VR. Vinsamlega meldið ykkur á Facebook síðu FT eða sendið póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. (ekki gera hvortveggja).

Hvar: Betware, Holtarsmára 1, 201 Kóparvogi.
Hvenær: Föstudaginn 12. febrúar kl 17-19.
Hver: Þú og fullt af tölvunarfræðingum.
 
«FyrstaFyrri12NæstaSíðasta»

Síða 1 af 2
Höfundarréttur © 2010 Félag Tölvunarfræðinga. Öll réttindi áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL leyfi.
 

Könnun

Er verkefnastjórn notuð í þínu fyrirtæki?