|
Skrifað af: ft-stjórn
|
|
Miðvikudagur, 28. apríl 2010 11:42 |
Aðalfundur Félags tölvunarfræðinga verður haldinn miðvikuudaginn 12. maí klukkan 17:00.
Í ár verður hann haldinn á sama stað og á síðasta ári, í fyrirlestrasal Íslandspósts að Stórhöfða 29.
Gengið er í húsið sjávarmegin. Staðsetningu má sjá á kortinu hér að neðan.
Dagskrá verður samkvæmt lögum félagsins:
1. Skýrsla um störf félagsins á liðnu starfsári. 2. Reikningsskil. 3. Lagabreytingar. 4. Kosning stjórnar og varamanna. 5. Kosning skoðunarmanna. 6. Ákvörðun félagsgjalda. 7. Önnur mál.
Farið verður yfir nýjustu kjarakönnun félagsins undir liðnum "Önnur mál" og heiðursfélagi tilnefndur.
Að venju verður boðið upp á léttar veitingar.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 05. maí 2010 11:48 |