|
Skrifað af: ft-stjórn
|
|
Miðvikudagur, 10. júní 2009 10:23 |
Heimsókn 16. maí: TM Software
TM Software ætlar að taka á móti okkur næsta föstudag (á morgun, 16.maí 2008) í ráðstefnusalnum á 1. hæð.
TM Software er til húsa að Urðarhvarfi 6 í Kópavogi. Þeir sem eru jafn illa að sér í landafræði Kópavogs og ég er geta stuðst við meðfylgjandi viðhengi til að finna staðinn. Hægt er að komast að Urðarhvarfi eftir Breiðholtsbrautinni að umferðarljósum rétt hjá Elliðaánum (Elliðavatni). Þar er beygt til hægri og síðan fyrstu götuna aftur til hægri. Þar er stór dökk bygging sem sést vel frá veginum.
Dagskrá þessarar heimsóknar verður eftirfarandi:
17:00 Kynning á TM Software og helstu sviðum. Í framhaldinu verður kynning á vörum og nýjungum í viðskiptahugbúnaði. Þar á eftir munum við fá kynningu á ARAD (Architected Rapid Application Development) hönnunarverkfærinu CA Plex. Um kl 18:00 verða boðnar léttar veitingar.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku, helst fyrir lok dags, til að gera TM kleyft að hafa næga stóla fyrir gestina :-)
|
|
Síðast uppfært: Föstudagur, 20. nóvember 2009 19:29 |