Forsíða ft.is
Fréttir
Fyrirtækjaheimsókn til CCP Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: ft-stjórn   
Mánudagur, 11. janúar 2010 23:34

CCP býður tölvunarfræðingum að skygnast á bak við tjöldin.  Fyrirtækjaheimsókn til CCP verður 22. janúar kl 17-19.  Tölvuleikur CCP hefur komist í fremstu röð og hefur fyrirtækið dottið niður á öflugar og skemmtilegar lausnir. Það er undir okkur komið hvað við viljum fræðast um.  Um leið og þið meldið þáttöku, þá vinsamlega sendið okkur hugmyndir um hvað þið viljið fræðast um.  Meldið þáttöku á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .  

Síðast uppfært: Mánudagur, 11. janúar 2010 23:53
 
Rel-8 samlokufundur Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: ft-stjórn   
Mánudagur, 11. janúar 2010 23:30

Haldin verður samlokufundur næstkomandi miðvikudag 13. janúar í húsi Verkfræðingafélagsins Engjategi 9 klukkan 12:00-13:00. Jón Jósef Bjarnason framkvæmdastjóri IT-cons ætlar að fjalla um vennslakerfi sitt Rel-8. Kerfið birtir á grafískan hátt tengsl manna í viðskiptalífinu. Kerfið notast að mestu leiti við opinber gögn en nú er jafnframt verið að bæta örðum gögnum við. Jón Jósef ætlar að fjalla um kerfið, stöðu þess í dag, þróun þess og framtíð.  

Svo hægt sé að áætla fjölda samloka vinsamlega meldið ykkur á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða á facebook (ekki bæði :o)

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 12. janúar 2010 00:20
 
Samlokufundur Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: ft-stjórn   
Fimmtudagur, 03. desember 2009 10:17

Föstudaginn 4. desember mun Jón Viggó Gunnarsson fjalla um uppbyggingu Thor Datacenter með gámum. Hann mun fara yfir kosti og galla þess að nota gáma bæði fjárhagslega og tæknilega. Sjá http://www.thordc.com/

Mæting er í VFÍ, Engjategi 9, klukkan 12-13.

Síðast uppfært: Föstudagur, 04. desember 2009 10:21
 
TM heimsókn Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: ft-stjórn   
Miðvikudagur, 10. júní 2009 10:23
Heimsókn 16. maí: TM Software

TM Software ætlar að taka á móti okkur næsta föstudag (á morgun, 16.maí 2008) í ráðstefnusalnum á 1. hæð.

TM Software er til húsa að Urðarhvarfi 6 í Kópavogi. Þeir sem eru jafn illa að sér í landafræði Kópavogs og ég er geta stuðst við meðfylgjandi viðhengi til að finna staðinn. Hægt er að komast að Urðarhvarfi eftir Breiðholtsbrautinni að umferðarljósum rétt hjá Elliðaánum (Elliðavatni). Þar er beygt til hægri og síðan fyrstu götuna aftur til hægri. Þar er stór dökk bygging sem sést vel frá veginum.

Dagskrá þessarar heimsóknar verður eftirfarandi:

17:00 Kynning á TM Software og helstu sviðum. Í framhaldinu verður kynning á vörum og nýjungum í viðskiptahugbúnaði. Þar á eftir munum við fá kynningu á ARAD (Architected Rapid Application Development) hönnunarverkfærinu CA Plex.
Um kl 18:00 verða boðnar léttar veitingar.

Vinsamlega tilkynnið þátttöku, helst fyrir lok dags, til að gera TM kleyft að hafa næga stóla fyrir gestina :-)
Síðast uppfært: Föstudagur, 20. nóvember 2009 19:29
 
Aðalfundur 2009 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: ft-stjórn   
Miðvikudagur, 10. júní 2009 10:17
Aðalfundur Félags tölvunarfræðinga fimmtudag 14. maí kl. 17:00

Á síðasta aðalfundi Félags tölvunarfræðinga urðu breytingar á stjórn félagsins. Eftirfarandi eru niðurstöður stjórnarkjörs.

Formaður:Ólafur Tr. Þorsteinsson

Stjórn: Birna Guðmundsdóttir,
Svavar G. Svavarsson,
Halla Einarsdóttir,
Ólafur Kristinsson

Varamenn :Jón Viðar Þorsteinsson
Monica Roismann

Stjórnarmenn hafa skipt með sér verkum og er Birna ritari og Svavar er gjaldkeri.

Úr stjórn fóru Árni Freyr Jónsson og Kjartan Birgisson og er þeim færðar bestu þakkir fyrir störf sín í þágu félagsins.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 10. júní 2009 10:18
 
«FyrstaFyrri12NæstaSíðasta»

Síða 2 af 2
Höfundarréttur © 2010 Félag Tölvunarfræðinga. Öll réttindi áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL leyfi.
 

Könnun

Er verkefnastjórn notuð í þínu fyrirtæki?