Forsíða ft.is
Fréttir
Theódór talar um hættur í heimi þróunar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Administrator   
Mánudagur, 08. mars 2010 16:00
Samlokurfyrirlestur á miðvikudaginn 10. mars.  Farið verður yfir skemmtileg dæmi um öryggishættur í hugbúnaði og hvaða hugsanlegu afleiðingar slíkar villur gætu haft. Theódór mun tala um raunveruleg dæmi og koma með live demo á veikleikum ásamt því að tala um þá veikleika hann hefur fundið við sína vinnu í gegnum árin. Fyrir utan dæmi um hvað getur farið úrskeiðis verður, í stuttu máli, fjallað um hvað þróunaraðilar geta gert til að forðast að lenda í klóm hakkara. Theódór hefur 15 ára reynslu reynslu af upplýsingaöryggi og er fyrsti atvinnuhakkari Íslands.  Meldið mætingu á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. svo hægt sé að áætla samlokur.  Fyrirlesturinn er í sal Verkfræðingafélag Íslands, Engjateigi 9, klukkan 12-13.
Síðast uppfært: Mánudagur, 08. mars 2010 16:23
 
Fyrirtækjaheimsókn til Betware Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Administrator   
Þriðjudagur, 02. febrúar 2010 16:50

Betware ætlar að bjóða FT í fyrirtækjaheimsókn föstudaginn 12. febrúar kl 17-19.  Betware er ört vaxandi hugbúnaðarfyrirtæki sem leggur áherslu á nýsköpun og þróun.  Hjá Betware eru 100 starfsmenn á Íslandi og erlendis. Þau ætla að fræða okkur um hugbúnaðgerðina, leikina, og hvað það er gaman að skapa nýtt og ferskt. 

Það verður án efa áhugavert að líta til þeirra, enda er Betware fyrirmyndarfyrirtæki samkvæmt VR. Vinsamlega meldið ykkur á Facebook síðu FT eða sendið póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. (ekki gera hvortveggja).

Hvar: Betware, Holtarsmára 1, 201 Kóparvogi.
Hvenær: Föstudaginn 12. febrúar kl 17-19.
Hver: Þú og fullt af tölvunarfræðingum.
 
Fyrirtækjaheimsókn til CCP Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Administrator   
Mánudagur, 11. janúar 2010 23:34

CCP býður tölvunarfræðingum að skygnast á bak við tjöldin.  Fyrirtækjaheimsókn til CCP verður 22. janúar kl 17-19.  Tölvuleikur CCP hefur komist í fremstu röð og hefur fyrirtækið dottið niður á öflugar og skemmtilegar lausnir. Það er undir okkur komið hvað við viljum fræðast um.  Um leið og þið meldið þáttöku, þá vinsamlega sendið okkur hugmyndir um hvað þið viljið fræðast um.  Meldið þáttöku á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .  

Síðast uppfært: Mánudagur, 11. janúar 2010 23:53
 
Rel-8 samlokufundur Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Administrator   
Mánudagur, 11. janúar 2010 23:30

Haldin verður samlokufundur næstkomandi miðvikudag 13. janúar í húsi Verkfræðingafélagsins Engjategi 9 klukkan 12:00-13:00. Jón Jósef Bjarnason framkvæmdastjóri IT-cons ætlar að fjalla um vennslakerfi sitt Rel-8. Kerfið birtir á grafískan hátt tengsl manna í viðskiptalífinu. Kerfið notast að mestu leiti við opinber gögn en nú er jafnframt verið að bæta örðum gögnum við. Jón Jósef ætlar að fjalla um kerfið, stöðu þess í dag, þróun þess og framtíð.  

Svo hægt sé að áætla fjölda samloka vinsamlega meldið ykkur á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða á facebook (ekki bæði :o)

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 12. janúar 2010 00:20
 
Samlokufundur Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Administrator   
Fimmtudagur, 03. desember 2009 10:17

Föstudaginn 4. desember mun Jón Viggó Gunnarsson fjalla um uppbyggingu Thor Datacenter með gámum. Hann mun fara yfir kosti og galla þess að nota gáma bæði fjárhagslega og tæknilega. Sjá http://www.thordc.com/

Mæting er í VFÍ, Engjategi 9, klukkan 12-13.

Síðast uppfært: Föstudagur, 04. desember 2009 10:21
 
«FyrstaFyrri12NæstaSíðasta»

Síða 1 af 2
Höfundarréttur © 2010 Félag Tölvunarfræðinga. Öll réttindi áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL leyfi.
 

Könnun

Er verkefnastjórn notuð í þínu fyrirtæki?